Þjóðfélagið á hraðri leið til helvítis

 Guðni mælir hér vel og sýnir og sannar enn einu sinni að Framsóknarflokkurinn er mikilvægur í Íslenskum stjórnmálum og það var hræðilegt að hann skildi felldur úr ríkisstjórn og í staðinn komið inn gjörspilltur kommúnistaflokkur, er ber heitið Samfylking, en ég kýs að kalla hina Íslensku Rauðu Khmera.

 Nú á að fella úr kennslu kristið siðgæði, sem er hræðilegt mál en kemur mér vægast sagt ekki mikið á óvart. Ég hef séð þetta allstaðar í kringum mig, trúleysi, viðbjóð, syndgun og hórdóm. Íslenskt samfélag er að verða djöfullegt og kenni ég Samfylkingarmönnum þar um.

  Gildi hinnar kristnu hugsunar eru nauðsynleg í öllum samfélögum. Það þarf ekki nema að líta á hin hræðilegu lönd sem aðhyllast guðlast á borð við Múhammeðstrú og Búddisma til að sjá hversu miklu máli skiptir að hafa kristin siðgæði eins og tíðkast hafa í vestur evrópu. Nú virðast íslendingar hinsvegar ætla að skera sig úr þeirri hugsun og byrja að ala börn okkar upp við guðlast og hórdóm. Íslenskt börn eru hræðileg, ofdekruð og orðljót, ókurteis gerpi upp til hópa. Eina leiðin til að koma þeim á rétta leið í lífinu er að kenna þeim, og þá helst berja í hausinn á þeim, kristna siðgæðishugsun. En nú virðist þetta allt saman hafa verið eyðilagt.

 Hvernig ætli Íslenskt þjóðfélag verði þegar guðleysingjarnir eldast og taka völdin? Allt hér mun fara til helvítis, svo einfalt er það. 


mbl.is Guðni: Nú skal kennsluborðum kristninnar velt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Furðuvera

Reyndar eru flestir jafnaldrar mínir sem mér finnst orðljót, ofdekruð, ókurteis gerpi, drekkandi hverja helgi og "stundandi hórdóm" með hverjum sem er um allar trissur að mestu leiti fermt fólk og segist trúa heilshugar á guð.

Ég er ekki fermd og trúi ekki á þinn guð, en persónulega finnst mér ég ekki passa við þína lýsingu og er ekki viss um að öðrum sem þekkja mig fyndist það heldur. 

Kaþólska og kristni í gegnum aldirnar hefur að mestu leiti til langs tíma litið leitt af sér stríð, morð, hryðjuverk og pyntingar, og eyðilagt líf fjölda góðs fólks sem aðeins vildu lifa í sinni eigin trú í friði.

Íslenskt þjóðfélag og hinn kristni heimur almennt er ekki að fara til helvítis útaf trúleysi. Þetta er allt saman að fara til fjandans út af sjálfu sér.

Furðuvera, 12.12.2007 kl. 18:11

2 Smámynd: Hróðmar Vésteinn

Þetta er nú meiri endeimisþvælan í ykkur, en ekki get ég svosem búist við neinu vitrænu frá ungmennum á borð við ykkur. Ekki frekar en fyrri daginn. Kannski djöfulleikinn sé ennþá dýpra grafinn en ég gerði ráð fyrir, ykkar kynslóð er eflaust gjörspilt og ekki batnar það þegar kristið siðgæði verður hrifsað úr höndum saklausra barna og þau neydd inn í heim eiturlyfjaneyslu og hórdóms.

Hróðmar Vésteinn, 12.12.2007 kl. 18:18

3 Smámynd: Furðuvera

Ohh í alvöru talað, höfum það eins og þú vilt... 

Já, ég finn það núna! Djöfullinn er að koma inn í mig! Ég fæ skyndilega þrá til að snorta kók og sprauta mig með heróíni, mig langar að ríða öllu sem ég sé, mig langar að brenna bækur, baða mig í blóði saklausra, mig langar að krota blótsyrði á veggi kirkjunnar og fá hörðustu presta til að efast!

Er það svona sem þú sért hlutina fyrir þér? Þú ert annað hvort eitthvað veikur á geði, eða bara lélegur grínisti. Hefði aldrei átt að eyða orðum í þig. 

Furðuvera, 12.12.2007 kl. 18:26

4 Smámynd: Hróðmar Vésteinn

Meiri endeimisþvælan í þér drengur. Ég styða á engan hátt "slagsmál", heimski drengstauli. Ég styð hinsvegar alvöru íþróttir og gott uppeldi. Ef þú ert að gagnrýna fyrri skrif mín.

Hróðmar Vésteinn, 12.12.2007 kl. 18:32

5 Smámynd: Þarfagreinir

Ég játa! Ég kaus Rauðu Khmerana í síðustu kosningum!

Hvað þarf ég að fara með margar Maríubænir til að bæta fyrir það?

Þarfagreinir, 12.12.2007 kl. 18:35

6 Smámynd: Hróðmar Vésteinn

Í öðru ertu að dýrka fólk sem ber annað fyrir pening. Eini munurinn á því og handrukkara eru áhorfendur.

 Handrukkarar eru svívirðilegir glæpamenn sem níðast á fólki sem borgar ekki fyrir eiturlyf. MMA er íþrótt þar sem tveir menn etja kappi undir reglum, yfirleitt í mesta bróðerni.  Það að þú skulir líkja þessu saman segir ýmislegt um vitsmuni þína.

Í hinu ertu að glorifya það að berja önnur börn. Reyndar í rassin en samt ertu að tala um að berja börn.

 Reyndar var það sagt hjá mér í smá gríni að ég hafi rasskellt börn á götum úti, en ég er algjörlega á því að foreldrar hafa fullan rétt til að nota þessa aðferð við uppeldi á sínum eigin börnu. 

Hróðmar Vésteinn, 12.12.2007 kl. 18:55

7 Smámynd: Vilhelmina af Ugglas

Megi hvorki mölur né rið eyða þínum færslum!

Vilhelmina af Ugglas, 12.12.2007 kl. 19:13

8 Smámynd: Sif Traustadóttir

Hróðmar er frábær grínisti   held bara að hann aðhyllist grínisma

Sif Traustadóttir, 13.12.2007 kl. 00:20

9 Smámynd: Neopúritaninn

ÞÚ BÝÐUR EKKI SYNDINNI KAFFI!

Neopúritaninn, 13.12.2007 kl. 01:15

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og átta?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband