Gott framtak

Ég sé nákvæmlega ekki neitt að því að aga börn aðeins til og fagna ég þessum Tannlækni sem hetju. Sjálfur hika ég ekki við að rasskella börn ef þau fara yfir strikið, þó að þau séu ekki mín eign. Ef foreldrar þeirra kunna ekki að ala þau upp á réttan hátt verður einhver að grípa inn í, og finnst mér bara hið sjálfsagasta mál að taka það að mér endrum og eins.

Börn verða að skilja að þau eru ekki manneskjur, þetta eru óbermi sem eru á vaxtarstigi á leið þess að verða að fólki. Börn eiga ekki að hafa sjálfstæða hugsun, berja á alla slíka vitleysu úr hausnum á þeim. Þetta var gert við mig á unga aldri og varð ég betri maður fyrir vikið. 

 Þó finnst mér hræðilegt að heyra að aumingja maðurinn skuli hafa verið sektaður. Þetta fé fer án nokkurs vafa í neyslu gjörspiltar vinstristjórnar þeirra Dana. 


mbl.is Tannlæknir rassskellti sjúkling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Það ætti bara að borga tannlæknum aukalega fyrir að flengja krakkarbjálæðinga af og til. Ekki eru þeir á það háum launum ræflarnir.

Brynja Hjaltadóttir, 10.12.2007 kl. 22:17

2 identicon

Við eigum að bera virðingu fyrir börnum og tala við þau en alls ekki að rasskella þau. Það eina sem þau læra af því er, ofbeldi og að rasskella næstu kynslóð. Ég hef aldrei verið rasskeld og tel enga þörf á því að beita ofbeldi. Börn eru yndisleg og við eigum að hugsa vel um þau og með virðingu.

Eydís (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 00:13

3 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 11.12.2007 kl. 00:57

4 identicon

Þetta er sama og ef krakkar bíta. Þekki einn sem var bitinn af krakkanum sínum. Hann beit til baka. Síðan hefur krakkinn ekki reynt þetta aftur

Weezer (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 11:32

5 identicon

Betri maður fyrir vikið? Stendur ekki að þú sér öryrki þarna fyrir ofan vinstra megin? Djöfullinn ertu eitthvað veikur...

Danni (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 16:23

6 identicon

Þú ert eiginlega of ótrúlegur til að vera sannur.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 17:04

7 Smámynd: Hróðmar Vésteinn

Daníel, eða hvað þú heitir. Ég er öryrkji vegna vinnuslyss er ég lenti í fyrir 5 árum síðan út á sjó. Það hefur ekkert með uppeldi mitt að gera, sem var með besta móti.

Hróðmar Vésteinn, 11.12.2007 kl. 17:59

8 identicon

Karma...

Danni (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og þremur?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband